Monday, April 10, 2006


skrimslid og eg Posted by Picasa

skrimslid mitt Posted by Picasa

kleinhringja keppnin Posted by Picasa

leigumor�inginn Posted by Picasa

Saturday, March 18, 2006

Stálmaginn

Vuhúú ég er búinn með anamatronics kaflan af skólanum og það gekk allt eins og í sögu það kom myndatöku maður í gær og tók upp smá myndband af skrímslinu mínu sem ég bjó til og tók viðtal við mig um hvernig ég bjó það til og hvað hafi verið skemmtilegast og svoleiðis. Það var St Patricks day í gær þannig það var náttúrulega farið út og fengið sér einn bjór eða svo ég fann samt engann grænan bjór þannig ég lét mig bara hafa það og drakk bara þennan venjulega. við héldum kleinuhringa áts keppni í bekknum mínum um daginn og auðvitað sýndi ég þessum könum hvernig á að borða kleinuhringi og vann með glæsibrag svo héldum við kexköku áts keppni í gær og það var sama sagan. Ég fer í prosthetics næst þar lærum við að setja gervinef og allskonar gervi á fólk það ætti að vera mjög gamann, ég verð í 6 vikur í því og svo er ég bara búinn og get loksins komið heim það er farið að hlakka í mér að sjá alla heima ég get varla beðið, djöfull ætla ég að fá mér pulsu og steikja mér hamborgara þegar ég kem og fara svo í grill heima hjá Inga ummm.

Friday, February 17, 2006

>>>>>><<<<<<

ég ætla að skella svona leik á síðuna nema ég ætla að breyta honum aðeins commentið á kerfið og ég segi ykkur eftifarandi

1. hvaða lag minnir mig á þig
2. hver myndi leika þig í bíomynd
3. eftirminnlegt moment
4. hvaða dýr þú ert
5. hvar þú verður eftir 10 ár

Monday, February 13, 2006

we are the robots

þá er maður byrjaður í anamatronics kaflanum af skólanum ég fíla það í tætlur kennarinn heitir Jason hann er mjög skemmtilegur hann er með svona lúmskan kaldhæðin húmor hann hefur unnið við að gera tæknibrellur fyrir fullt af af myndum eins og Resident evil, Saw og Dawn of the dead. Við erum að smíða hausa núna sem við munum filla af græjum svo það verður hægt að hreyfa augun , blikka og hreyfa munninn með fjarstýringu. Restin af skólanum á örugglega eftir að líða mjög hratt því það er bara það eftir sem ég hef mestan áhuga á, ég skelli myndum af því sem ég er að gera á síðuna þegar ég fæ þær. Jæja best að byrja á heimaverkefninu ég þarf að finna leið til að búa til laser byssu úr herðatrjám og hinu og þessu dóti sem maður gæti fundið á seinustu stundu. Ég sakna ykkar allra heima og get ekki beðið eftir að sjá ykkur.

Thursday, February 02, 2006


allyson sem daudinn og kolkrabba tattootid mitt Posted by Picasa

Thursday, January 26, 2006


jen,eg og allyson Posted by Picasa

eg breytti maggie i skratta Posted by Picasa

eg amy og isabelle Posted by Picasa

michelle,eg,jessie og maggie Posted by Picasa

rob og maggie Posted by Picasa

Monday, December 26, 2005

"="="="=Gleðileg jól="="="="

jæja jólin koma og fara hér í Kanada og maður verður lítið var við það þegar það eru engin matarboð til að fara í og ekkert jóla gotterí til að háma í sig. En það er annars allt gott að frétta mér gekk mjög vel í prófunum sem voru fyrir jólin fékk 9 samanlagt svo byrjuðum við hjá nýjum kennara sem mjög fínn hann leifði okkur að fara einum degi snemma í jóla frí og allt. Ég er búinn að komast að því að Kóreskur matur er allveg óætur ég á heima rétt hjá Korea town þannig ég er búinn að prófa hann nokkrum sinnum og hann fer bara versnandi með hverjum réttinum sem ég prófa ég held ég haldi mig bara við Kínverskan og Tælenskan
þegar kemur að Asískri matargerð. Ég fer til New York 30 des til að hitta Davíð Braga og Möggu og halda upp á áramótin á times square það ætti að vera mikil upplifun og örugglega mikið stuð.

Gleðileg jól og passið ykkur að skemmta ykkur aðeins of mikið um áramótin og ég bið að heilsa Tarantino og Kiefer sakna ykkar rosalega bææ.